Sigmar Vilhjálmsson og Jóhannes Ásbjörnsson (Simmi og Jói),  eru mennirnir á bakvið Hamborgarafabrikkuna. Hugmyndin er nokkurra ára gömul en fékk byr undir báða vængi þegar hin svokallaða kreppa skall á. Strákunum fannst vera brýn þörf fyrir veitingastað sem býður einstaka og lifandi stemningu, framúrskarandi mat og gott verð. Þeir sem muna eftir gamla, góða Hard Rock vita að þangað fór fólk ekki einungis vegna matarins, það var ekki síst stemningin og sálin á staðnum sem gegndi lykilhlutverki. Markmiðið Hamborgarafabrikkunnar er einfalt; Að verða skemmtilegasti veitingastaður á Íslandi.


Hamborgarafabrikkan er til húsa á jarðhæð turnsins á Höfðatorgi. Veitingasalurinn rúmar 140 manns og er rúmgóður með mikilli lofthæð. Tveggja hæða bílastæðahús er undir turninum og þaðan er lyftan tekin upp í sameignarrýmið framan við innganginn á staðinn.


Matseðill Hamborgarafabrikkunnar er einfaldur og er áherslan lögð á 14 framúrskarandi hamborgara, skemmtilega og einfalda forrétti og frábæra eftirrétti.


Opnunartímar Hamborgarafabrikkunnar eru Sunnudaga til miðvikudaga frá kl. 11-22 og fimmtudaga til laugardaga frá kl. 11-24.


UM HAMBORGARAFABRIKKUNA
TÓNLISTIN Á FABRIKKUNNI

Fabrikkan heldur með íslenskri tónlist og spilar því eingöngu íslenska tónlist. Lagalistar Fabrikkunnar eru sérhannaðir af íslenskum tónlistarspekingum og aðgengilegir öllum inná Tónlist.is. Fabrikkan mælir með að þú kynnir þér úrval íslenskrar tónlistar á Tónlist.is. Þar er í boði ókeypis prufuáskrift sem veitir aðgang að allri íslenskri tónlist í streymi.

fabrikkan@fabriKkan.is